Stafrænt aðalskipulag sveitarfélaga er birt eins og það er í gildi á hverjum tíma. Unnt er að smella á Breytingasaga á tólastiku til að sjá breytingar sem gerðar hafa verið á skipulagstímabilinu, fyrir hvert sveitarfélag. Komi upp vafamál eða ágreiningur um túlkun aðalskipulags á stafrænu formi, eða ef misræmi er á milli stafrænna gagna og samþykktra gagna aðalskipulags, gilda samþykkt aðalskipulagsgögn, þ.e. útprentaður, samþykktur skipulagsuppdráttur í réttum mælikvarða og skipulagsgreinargerð.
Uppruni gagna og nákvæmni þeirra eru af misjöfnum toga og má í grófum dráttum skipta í tvo flokka:
Túlkun uppdrátta ræðst af mælikvarða staðfestra skipulagsuppdrátta. Mælikvarði túlkunar er settur fram undir eigindinni nákvæmni í stafrænum gögnum.
Í þeim tilvikum sem aðalskipulag var dregið upp af staðfestum uppdráttum var lögð áhersla á að ná góðri yfirsýn yfir alla megin landnotkunarflokka. Í viðkomandi sveitarfélögum innihalda þekjurnar því aðeins landnotkunarflokka, aðra en vötn ár og sjó, og helstu takmarkanir á landnotkun ásamt göngu-, hjóla-, og reiðleiðum. Gögnin voru ekki að öllu leyti unnin í samræmi við það sem sett er fram í gagnalýsingu.
Þar sem landnotkun sem táknuð er með punkti liggur ofan á annarri landnotkun sem skilgreind er sem fláki, gildir sú landnotkun sem punkturinn tilheyrir
Stafræn gögn eru ekki tæmandi heimild fyrir stefnumörkun í aðalskipulagi. Í greinargerð aðalskipulags er sett fram stefna og ákvarðanir sveitarstjórnar um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar. Þar koma fram ýmsar upplýsingar sem ekki rúmast í stafrænu aðalskipulagi. Því er mikilvægt að skoða sértæk ákvæði sem gilda um hvern reit með hliðsjón af almennum ákvæðum sem birt eru í greinargerð aðalskipulags sem og annarri almennri stefnumótun sem þar er sett fram.
Smellið hér til að nálgast gagnalýsingar stafræns skipulags.
Stafrænt deiliskipulag er birt eins og það er í gildi á hverjum tíma. Breytingar á skipulagi má nálgast með því að smella á hvern reit og skoða uppdrætti og greinargerðir á pdf formi. Stafrænt deiliskipulag á að endurspegla heimildir og skipulagsskilmála sem sett eru fram í samþykktu deiliskipulagi. Komi upp vafamál eða ágreiningur um túlkun deiliskipulags á stafrænu formi, eða ef misræmi er á milli stafrænna gagna og samþykktra gagna deiliskipulags, gilda samþykkt deiliskipulagsgögn, þ.e. útprentaður, samþykktur skipulagsuppdráttur í réttum mælikvarða og skipulagsgreinargerð.
Fyrir 1. janúar 2025 var eingöngu haldið utan um skipulagsmörk í stafrænu deiliskipulagi og voru þau dregin upp handvirkt af staðfestum skipulagsuppdráttum og/eða byggð á teiknigögnum (CAD) sveitarfélaga. Í þeim tilfellum eru mörkin almennt ekki afmörkuð mjög nákvæmt. Eftir þann tíma hefur nákvæmni aukist en túlkun á landfræðilegum afmörkunum í stafrænu deiliskipulagi ræðst þó af mælikvarða staðfestra skipulagsuppdrátta.
Gæði deiliskipulagsgagna eru á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. Allar lagfæringar, breytingar og endurskoðun á skipulagsgögnum eru á forræði þess sveitarfélags sem gögnin eiga uppruna hjá. Sveitarfélög skila gögnunum til Skipulagsstofnunar sem hefur umsjón með varðveislu og miðlun þeirra.
Ef deiliskipulagsgögn birtast ekki getur það skýrst af því að beðið er eftir gildistöku deiliskipulagsins, beðið er eftir lagfærðum gögnum frá sveitarfélaginu eða að mistök hafa verið gerð við innsetningu gagna. Hægt er að hafa samband við Skipulagsstofnun eða viðkomandi sveitarfélag til að fá nánari upplýsingar. Í vefsjánni er einnig töluvert af deiliskipulagsáætlunum samkvæmt eldri lögum um skipulagsmál en þar er ekki um tæmandi skráningu að ræða. Þá getur vantað deiliskipulagsáætlanir sem eru í vörslu stofnunarinnar en ekki liggur ljóst fyrir hvort hafi öðlast gildi.
Smellið hér til að nálgast gagnalýsingar stafræns skipulags
Gögnin sýna afmarkanir svæðisskipulags sem er í gildi samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og skipulagslögum nr. 123/2010 og varðveitt er hjá Skipulagsstofnun. Einnig má sjá hvar svæðisskipulag er í vinnslu.
Smellið hér fyrir frekari upplýsingar um svæðisskipulag
Hér er hægt að nálgast skipulagsáætlanir sem eru í gildi samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og skipulagslögum nr. 123/2010 og varðveittar eru hjá Skipulagsstofnun. Það á við um svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag og breytingar á þessum áætlunum. Ef misræmi er á milli undirritaðra skipulagsgagna sem eru varðveitt hjá Skipulagsstofnun og gagna sem birt eru í Skipulagsvefsjánni, þá gilda undirrituðu gögnin.
Skipulagsvefsjáin er í sífelldri þróun og stöðugt unnið að uppfærslu og viðhaldi gagna sem eru birt. Við tökum glöð við ábendingum og athugasemdum á skipulag@skipulag.is.
Nánari upplýsingar um gögnin og fyrirvara er að finna hér