{ "culture": "is-IS", "name": "", "guid": "", "catalogPath": "", "snippet": "Afmörkun miðhálendisins, fláki og lína, eins og hún er skilgreind í landsskipulagsstefnu 2015-2026.", "description": "
Afmörkun sem vísar til stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu sem sett er fram í landsskipulagsstefnu 2015-2026. Landsskipulagsstefnan er unnin á grunni skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um landsskipulagsstefnu. <\/SPAN><\/P> Í landsskipulagsstefnu er stefna um skipulagsmál á miðhálendinu miðuð við afmörkun miðhálendisins eins og hún er skilgreind í Svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015. Hún miðast í grunninn við línu dregna á milli heimalanda og afrétta en sem var aðlöguð staðbundið í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila við vinnslu svæðisskipulagsins. Markalína miðhálendisins skal auðkennd á aðalskipulagsuppdráttum þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið.<\/SPAN><\/P> Samkvæmt landsskipulagsstefnu 2015-2026 skal Skipulagsstofnun varðveita hnitsetta afmörkun miðhálendisins og veita aðgang að nýjustu útgáfu hennar. Sveitarstjórnir geta lagt til breytingar á markalínu miðhálendisins við endurskoðun aðalskipulags, enda feli breytingin í sér að endurskoðuð markalína afmarki betur náttúrufarslega heild hálendisins. <\/SPAN><\/P> Landupplýsingagögn fyrir mörk miðhálendisins urðu fyrst til þegar Svæðisskipulag miðhálendis Íslands 2015 var í vinnslu og voru þau unnin á kortagrunn Landmælinga Íslands á þeim tíma. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögnin og skráð eigindir fyrir þau. <\/SPAN><\/P> Listi yfir sveitarfélög á miðhálendinu: Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Eyjafjarðarsveit, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Djúpavogshreppur, Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur.<\/SPAN><\/P> <\/P><\/DIV><\/DIV><\/DIV>",
"summary": "Afmörkun miðhálendisins, fláki og lína, eins og hún er skilgreind í landsskipulagsstefnu 2015-2026.",
"title": "Afmörkun miðhálendisins \u2013 landsskipulagsstefna 2015-2026",
"tags": [
"Miðhálendi"
],
"type": "",
"typeKeywords": [],
"thumbnail": "",
"url": "",
"minScale": 150000000,
"maxScale": 50000,
"spatialReference": "",
"accessInformation": "Skipulagsstofnun",
"licenseInfo": "",
"portalUrl": ""
}