{ "culture": "is-IS", "name": "", "guid": "", "catalogPath": "", "snippet": "Afmörkun miðhálendisins, fláki og lína, eins og hún er skilgreind í landsskipulagsstefnu 2015-2026.", "description": "

Afmörkun sem vísar til stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu sem sett er fram í landsskipulagsstefnu 2015-2026. Landsskipulagsstefnan er unnin á grunni skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um landsskipulagsstefnu. <\/SPAN><\/P>

Í landsskipulagsstefnu er stefna um skipulagsmál á miðhálendinu miðuð við afmörkun miðhálendisins eins og hún er skilgreind í Svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015. Hún miðast í grunninn við línu dregna á milli heimalanda og afrétta en sem var aðlöguð staðbundið í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila við vinnslu svæðisskipulagsins. Markalína miðhálendisins skal auðkennd á aðalskipulagsuppdráttum þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið.<\/SPAN><\/P>

Samkvæmt landsskipulagsstefnu 2015-2026 skal Skipulagsstofnun varðveita hnitsetta afmörkun miðhálendisins og veita aðgang að nýjustu útgáfu hennar. Sveitarstjórnir geta lagt til breytingar á markalínu miðhálendisins við endurskoðun aðalskipulags, enda feli breytingin í sér að endurskoðuð markalína afmarki betur náttúrufarslega heild hálendisins. <\/SPAN><\/P>

Landupplýsingagögn fyrir mörk miðhálendisins urðu fyrst til þegar Svæðisskipulag miðhálendis Íslands 2015 var í vinnslu og voru þau unnin á kortagrunn Landmælinga Íslands á þeim tíma. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögnin og skráð eigindir fyrir þau. <\/SPAN><\/P>

Listi yfir sveitarfélög á miðhálendinu: Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Eyjafjarðarsveit, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Djúpavogshreppur, Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur.<\/SPAN><\/P>

<\/P><\/DIV><\/DIV><\/DIV>", "summary": "Afmörkun miðhálendisins, fláki og lína, eins og hún er skilgreind í landsskipulagsstefnu 2015-2026.", "title": "Afmörkun miðhálendisins \u2013 landsskipulagsstefna 2015-2026", "tags": [ "Miðhálendi" ], "type": "", "typeKeywords": [], "thumbnail": "", "url": "", "minScale": 150000000, "maxScale": 50000, "spatialReference": "", "accessInformation": "Skipulagsstofnun", "licenseInfo": "", "portalUrl": "" }