Lagið sýnir flokkun megin landslagsgerða á Íslandi og er fylgigagn skýrslunnar Landslag á Íslandi; Flokkun og kortlagning landslagsgerða á landsvísu þar sem greint er frá flokkunarkerfi fyrir landslagsgerðir á Íslandi.
Tilgangur kortlagningar var að leggja til grunnupplýsingar og gefa grófa yfirsýn yfir helstu landslagsgerðir á landsvísu, sem unnt er að líta til við skipulagsgerð og nánari kortlagningu landslagsheilda.
Við afmörkun og kortlagningu landslagsgerða voru mörk dregin gróflega og áhersla lögð á að gefa grófa yfirsýn flokka á landsvísu í litlum mælikvarða (mkv.1:500.000). Eingöngu var byggt á fyrirliggjandi gögnum og er um fyrstu útgáfu að ræða. Afmarkanir og gögn voru sett fram með það í huga að unnt verði að byggja upp ítarlegri landslagsprófíl fyrir hverja landslagsgerð og hvert einstaka svæði í framtíðinni og gert er ráð fyrir að kort verði uppfært og gefið út í nýrri útgáfu þegar svæði hafa verið greind nánar og ítarlegri upplýsingar liggja fyrir. Er þar horft til reynslu af vinnu við kortlagningu landslagsgerða á Bretlandseyjum þar sem kortlagningin hefur verið endurútgefin eftir því sem ítarlegri upplýsingar liggja fyrir.