Description: Afmörkun sem vísar til stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu sem sett er fram í landsskipulagsstefnu 2015-2026. Landsskipulagsstefnan er unnin á grunni skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um landsskipulagsstefnu. Í landsskipulagsstefnu er stefna um skipulagsmál á miðhálendinu miðuð við afmörkun miðhálendisins eins og hún er skilgreind í Svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015. Hún miðast í grunninn við línu dregna á milli heimalanda og afrétta en sem var aðlöguð staðbundið í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila við vinnslu svæðisskipulagsins. Markalína miðhálendisins skal auðkennd á aðalskipulagsuppdráttum þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið.Samkvæmt landsskipulagsstefnu 2015-2026 skal Skipulagsstofnun varðveita hnitsetta afmörkun miðhálendisins og veita aðgang að nýjustu útgáfu hennar. Sveitarstjórnir geta lagt til breytingar á markalínu miðhálendisins við endurskoðun aðalskipulags, enda feli breytingin í sér að endurskoðuð markalína afmarki betur náttúrufarslega heild hálendisins. Landupplýsingagögn fyrir mörk miðhálendisins urðu fyrst til þegar Svæðisskipulag miðhálendis Íslands 2015 var í vinnslu og voru þau unnin á kortagrunn Landmælinga Íslands á þeim tíma. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögnin og skráð eigindir fyrir þau. Listi yfir sveitarfélög á miðhálendinu: Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Eyjafjarðarsveit, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Djúpavogshreppur, Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur.
Description: Mat á ósnertum víðernum á Íslandi 2009. Unnið í samræmi við niðurstöðu starfshóps um hugtakið ósnortið víðerni: http://www.umhverfisraduneyti.is/utgefid-efni/nr/277
Service Item Id: c20ab35e8067443d817ff3384bca9e73
Copyright Text: Umhverfisstofnun 2009, Environment Agency of Iceland 2009